18.6.2008 | 00:16
Ég er búin að bíða eftir þessu !
Ekki af því að mig langaði það heldur af því að ég var alveg viss um að þetta myndi gerast.
Í hvert skiptið sem ég opnaði fréttamiðil hérna á netinu beið ég eftir nákvæmlega þessari fyrirsögn.
Þetta var allt saman bara svo of fjarstæðukennt til að vera satt en frábært samt ef hefði tekist.
En út í allt annað.
Ég á það til að vera berdreymin, hvort sem þið trúið á svoleiðis hluti eða ekki.
Nóttina áður en þessi ísbjörn uppgötvast dreymir mig að ég sé 4 jafnvel 5 ísbirni vera að rölta um í fjöru. Þeir voru ekki mjög stórir, svona meðalbirnir svipað og þessir sem eru búnir að koma hingað svo ég segi og munið það..það eiga fleiri eftir að ganga á land ef þeir eru ekki nú þegar komnir. Ekki finnst mér ólíklegt að það væri hér á Vestfjörðum fyrst mig þurfti endilega að dreyma þetta.
Kannski eru einhverjir að hlæja að mér núna..mér er sama.
Mig dreymdi líka einu sinni mann sem ég þekkti einu sinni en hafði ekki hitt í mörg ár svo hann var ekki ofarlega í huga mér. Hann var með brotna framtönn og var mikið að spjalla við mig. Áberandi fannst mér hvað honum leið rosalega vel og það lýsti alveg af honum. Hann var að tala umákveðna manneskju sem ég þekkti líka. Stuttu seinna frétti ég frá þessari manneskju, vinkonu minni að hann sé dáinn. Ég hafði ekkert sagt henni frá draumnum enda lagt lítið í hann. Vissi ekki að hann væri frændi hennar fyrr en hún sagði mér það.
Brotin tönn merkir víst að manneskjan sé látin..komst að því eftir á.
Spúkí...
Dreymdi líka einu sinni að fyrrverandi kærasti minn hafði eignast barn, litla stúlku. Hann sagði mér þetta í draumnum og sagði mér nafnið líka. Sagði mér líka hvað hann væri fegin að geta talað við mig hann væri mikið búinn að hugsa til mín. Stuttu seinna frétti ég að hann hefði eignast litla stúlku en nafnið var ekki það sama ég fattaði þá að nafnið þýddi lífstíl hans sem er miður fallegur eða var.
Ýmislegt svona undarlegt. Þetta hefur ekki gerst lengi hjá mér samt þangað til þetta með ísbjörninn og einn annar draumur sem mig grunar að eigi eftir að rætast einhvernvegin úr þótt ég viti það ekki fyrr en að því kemur.
Já svona er ég undarleg..sumir trúa auðvitað ekkert á þetta eins og ég veit að ákveðin frænka mín gerir..fussar örugglega og sveiar núna..þú veist hver þú ert ?
En já ástæðan fyrir þessu bloggi var að segja ykkur frá draumnum svo þið vitið að þetta er ekki búið enn
|
Ísbjörninn að Hrauni dauður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



ansiva
lindape
bjarnardottir
biggibix
rocksock
ylfamist
majabet
helgamargret
samlokugrill
101isafjordur
jonastryggvi
juljul
vestfirdir
kokkurinn


Athugasemdir
Hum varstu að skrifa um mig. Komnar heim 22.30. KMÖ bílveik og gubbaði yfir sig alla
besta frænka (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 00:34
Vala mín halltu þig bara inni........
Hóffý (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 14:42
Vá magnað Vala mín... það er nú ekki annað hægt en að trúa þessu þegar skilaboðin eru svona skýr.
Sakn, sakn!!
Anna Sigga, 19.6.2008 kl. 15:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.